Hulstur fyrir Galaxy Tab S7 og S8 spjaldtölvur
með hólfum fyrir greiðslukort, seðla, ljósmynd og penna. Hægt að nota sem stand fyrir tölvuna. Fullt aðgengi að öllum hnöppum og tengjum á tölvunni
- Framleitt úr hágæða leðurefni og plastefni
- Ver tölvuna fyrir hnjaski og rispum
- Auðvelt aðgengi að tengjum og hnöppum á tölvunni
- Hólf fyrir greiðslukort
- Hólf fyrir seðla
- Hólf fyrir penna
- Svæfir-Vekur tölvuna við opnun og lokun
- Hægt nota sem stand fyrir tölvuna
- Litur: Svartur
Passar fyrir: Samsung Galaxy Tab S7 2020 SM-T870 / SM-T875 og Galaxy TAB S8
Þetta hulstur fyrir Galaxy Tab S7 og S8 spjaldtölvur er ekki aðeins hannað til að gera þér mögulegt að nota það sem stand fyrir spjaldtölvuna. Það veitir spjaldtölvunni einnig vörn fyrir rispum og hnjaski. Gripið á henni verður einnig betra og líkurnar á því að hún „renni“ úr greipum þér eru minni.
Þú þarft ekki að taka spjaldtölvuna úr hulstrinu til að hlaða hana þar sem þú hefur fullt aðgengi að öllum hnöppum og tengjum á tölvunni. Þú getur einnig notað hulstrið til að láta spjaldtölvuna standa á láréttum og sléttum fleti eins og borði. Hulstrið er framleitt úr PU leðurefni og plastefni. PU er “Thermoplastic Polymer” leðurlíki sem er mikið notað við framleiðslu á húsgögnum og skóm.
Einfalt og þægilegt
Þú getur gengið frá kaupum á þessari vöru hér á netinu hvenær sem er sólarhringsins, alla daga vikunnar. Þú getur valið um að fá vöruna senda heim til þín með póstinum, í póstbox eða á pósthús í nágrenni við þig. Einnig getur þú sótt vöruna til okkar þegar hún er tilbúin til afhendingar.
Tölvupóstur er sendur til kaupanda þegar pöntun er tilbúin til afhendingar af lager og/eða þegar hún er send af stað með póstinum. Við reynum að afgreiða samdægurs allar pantanir sem berast fyrir hádegi á virkum dögum eða strax næsta virka dag eftir vörukaup. Þú getur greitt fyrir vöruna með öllum venjulegum greiðslukortum á öruggri greiðslusíðu og með Netgíró eða Pei greiðslu. Allar nánari upplýsingar um greiðslumöguleika, afgreiðslufrest og afhendingarmöguleika er að finna hér.