Skjá og njósnavörn fyrir Galaxy A53 5G farsíma
Skjávörn úr hertu gleri með allt að 30° lestrarvörn frá vinstri og hægri hlið. Með þessa skjávörn á símanum þínum er aðeins hægt að lesa á skjáinn með því að horfa beint á hann og kemur hún þannig í veg fyrir að sá sem stendur við hliðina á þér geti lesið viðkvæmar persónuupplýsingar á símanum þínum án þinnar vitneskju. Skjávörnin ver líka símann þinn fyrir höggum, rispum, fingraförum og hnjaski. Athugið að vegna lestraröryggis eiginleika skjávarnarinnar getur þurft að auka birtustig skjásins, en við það getur orkunotkun símans aukist.
- Hörkustig: 9H
- Mjög þunn og sveigjanleg
- Hert háskerpu sveigt öryggisgler.
- Slétt yfirborð og brúnir.
Passar fyrir: Galaxy A53 5G
Þessi skjávörn hjálpar til við að verja skjáinn á símanum þínum fyrir höggum, rispum, hnjaski, fingraförum og ryki. Skjávörnin auðveldar einnig þrif á skjánum verði hann fyrir því að óhreinkast af völdum vökva eða annars. Með þessa skjávörn á símanum þínum er aðeins hægt að lesa af skjánum með því að horfa beint á hann. Skjávörnin kemur þannig í veg fyrir að sá sem stendur við hliðina á þér geti lesið það sem stendur á skjánum. Athugið að skjávarnir eru ekki óbrjótanlegar og geta brotnað við högg eða þrýsing. Hlutverk skjávarnar er að vernda skjáinn á símanum en ekki sjálfa sig. þú getur lesið meira um skjávarnir hér.
Einfalt og þægilegt
Þú getur gengið frá kaupum á þessari vöru hér á netinu hvenær sem er sólarhringsins, alla daga vikunnar. Þú getur valið um að fá vöruna senda heim til þín með póstinum, í póstbox eða á pósthús í nágrenni við þig. Einnig getur þú sótt vöruna til okkar þegar hún er tilbúin til afhendingar.
Tölvupóstur er sendur til kaupanda þegar pöntun er tilbúin til afhendingar af lager og/eða þegar hún er send af stað með póstinum. Við reynum að afgreiða samdægurs allar pantanir sem berast fyrir hádegi á virkum dögum eða strax næsta virka dag eftir vörukaup. Þú getur greitt fyrir vöruna með öllum venjulegum greiðslukortum á öruggri greiðslusíðu og með Netgíró eða Pei greiðslu. Allar nánari upplýsingar um greiðslumöguleika, afgreiðslufrest og afhendingarmöguleika er að finna hér.