Hybrid símahulstur fyrir Xiaomi 14 farsíma
með innbyggðri málmplötu og borðfæti. Með málmplötunni er hægt að festa símann við segulfestingu á borði eða í bíl. Hulstrið er framleitt úr TPU og PC plastefnum sem verja símann fyrir höggum og hnjaski.
TPU (thermoplastic polyurethane) er höggþolið, sveigjanlegt plastefni sem er minna stíft en PC (Polycarbonate) plastefnið en ekki eins mjúkt og silicone. PC (Polycarbonate) er höggþolið og stíft plastefni sem er mikið notað til að styrkja símahulstur að innanverðu.
- Efni: TPU og PC.
- Vörn: Já. Ver símann þinn fyrir höggum og hnjaski.
- Kortahólf: Nei.
- Hólf fyrir skilríki: Nei.
- Hólf fyrir peningaseðla: Nei.
- Aðgengi að hnöppum: Fullt aðgengi að öllum tengjum og hnöppum á símanum.
- Aukamöguleikar: Innbyggð málmplata til festingar við segulfestingar í bílum og borðfótur.
- Litur: Rauður
Passar fyrir: Xiaomi 14
Þetta símahulstur fyrir Xiaomi 14 farsíma veitir símanum þínum vörn fyrir höggum, rispum og hnjaski. Gripið á símanum verður einnig betra og líkurnar á því að hann „renni“ úr greipum þér eru minni. Þú þarft ekki að taka símann úr hulstrinu til að hlaða hann þar sem þú hefur fullt aðgengi að öllum hnöppum og tengjum á símanum.
Á bakhlið hulstursins borðfótur og málmplata sem hægt er að nota til að festa hann við segulfestingu á sléttum fleti eða í bíl.
Símahulstur eru ýmist framleidd úr plastefnum, málmefnum eða hertu gleri og veita þau mismundandi vörn í samræmi við það. Ekkert símahulstur veitir símanum fullkomna vörn fyrir höggum en þau hjálpa til við að lágmarka tjón.
Einfalt og þægilegt
Þú getur gengið frá kaupum á þessari vöru hér á netinu hvenær sem er sólarhringsins, alla daga vikunnar. Þú getur valið um að fá vöruna senda heim til þín með póstinum, í póstbox eða á pósthús í nágrenni við þig. Einnig getur þú sótt vöruna til okkar þegar hún er tilbúin til afgreiðslu.
Tölvupóstur er sendur til kaupanda þegar pöntun er tilbúin til afgreiðslu, en við reynum að afgreiða allar pantanir samdægurs á virkum dögum eða strax næsta virka dag eftir vörukaup. Þú getur greitt fyrir vöruna með öllum venjulegum greiðslukortum á öruggri greiðslusíðu og með Netgíró eða Pei greiðslu. Allar nánari upplýsingar um greiðslumöguleika, afgreiðslufrest og afhendingarmöguleika er að finna hér.